Pakkaheimur

Pakkaheimur var stofnað 27.Mars 2026.
Tilgangur þessarar vefsíðu er að stuðla að aukinni samkeppni á Íslandi á sviði Pokémon-korta og annarra safnkorta. 
Í öðrum Norðurlöndum, svo sem í Noregi og Danmörku,hafa Kóresk Pokémon-kort notið mikilla vinsælda. Kortin eru sambærileg við japönsku útgáfuna að framanverðu, en bakhliðin er eins og á enskum kortum (þ.e. án gullröndar sem einkennir japönsk kort).
Við ætlum að bjóða upp á hagstætt verð á Booster-kössum, Booster-pökkum og stökum kortum (singles), auk ódýrar möppur, plöst og annarra fylgihluta.
Í September munum við jafnframt hefja sölu á kóreskum Booster kössum frá Disney, Magic, Yu-Gi-Oh og One Piece.
Pakkaheimur mun í upphafi einbeita sér að Pokémon-kortum frá Kóreu.
Markmið okkar er að halda verðlagi í hófi, ólíkt því sem tíðkast hefur hér á landi, þannig að fjölskyldur og aðrir áhugasamir geti keypt fleirri kassa til að opna, setja í plöst og í möppur :)


Afhverju Kóresk pokémon!
Hef sjálfur safnað kóreskum Pokémon kortum í rúm tvö ár og á stórt safn.
Ég safna ekki enskum kortum þar sem mér finnst þau persónulega of dýr.
Fyrir mér skiptir meira máli að geta opnað þrjá til fjóra Booster-kassa í stað eins.
Það er mér ljóst að ekki er hægt að selja kort á borð við Umbreon úr Terastal Festival (Prismatic Evolutions ) eða Bubble Mew úr Shiny Treasure ex (Paldean Fates) á sama verði og í enskum settunum.
Ensku kortin eru að seljast dýrt enda er dýrt að kaupa 1 Booster kassa.
Japönsk kort seljast oftast 50% lægra en þau ensku, enda kostar Booster kassi helmingi minna.
Svo eru það Kóresk kort sem seljast á 40% lægra en þau Japönsku enda kostar 1 Booster kassi 40% minna.
Fyrir mig, líkt og marga aðra, er safnkortasöfnun fyrst og fremst áhugamál.
Áherslan liggur í ánægjunni af því að opna pakka, raða kortum í möppur og upplifa spennuna við að fá eftirsótt „hits“. :)


Greiðslur
Við getum því miður ekki boðið uppá það að það sé hægt að greiða með korti ákkurat núna þar sem við erum bara að byrja þetta ævintýri :)
 Það er hægt að millifæra og borga með Paypal.
Til að borga með PayPal þarftu að fara á Paypal.com og þar er leitargluggi sem þú skrifar Sigmar@pakkaheimur.com
Millifærsla: 0511-26-053556 Kt.0409824269 Sigmar Magnússon
Ætla að reyna að hafa það tilbúið í sumar að það verði hægt að greiða með korti.
Biðst velvirðingar á þessu. 


Samanburður
🇰🇷) Kóresk Pokémon kort minna þekkt en oft vanmetin! 
Textinn er á kóresku
Byggt á japönsku settunum
Miklu ódýrari en ensk og japönsk
Svipuð prentgæði og japönsk 
Minna virði í endursölu (enda ódýari í kaupum)
Best fyrir: þá sem vilja safna og opna pakka á lágu verði
🇯🇵) Japönsk Pokémon kort
Japan fær ný sett mánuðum á undan öðrum
Betri prentgæði (þykkari kort, skarpari litir)
Minni sett – enska útgáfan sameinar oft nokkur japönsk sett
Mjög vinsæl hjá safnurum
Textinn er á japönsku
Ódýrari í lausum pökkum, en sjaldgæf kort geta verið dýr
🇺🇸) Ensk Pokémon kort
Algengust á Íslandi
Textinn er á ensku
Notuð í flestum alþjóðlegum mótum
Auðveldari í spilun ef þú kannt ensku
Miklu Dýrari pakkar en japönsk og Kóresk kort
Gæðin (prentun/skerpa) eru stundum lakari en í japönskum kortum

Facebook
Minni á facebook síðuna facebook.com/pakkaheimur þar ætla ég að vera með statusa um nýjar sendingar, Pakkaopnanir og leiki sem þú gætir unnið t.d Booster kassa, fríar möppur, fríar heimsendingar ofl.